Heimir Guðjóns kom í gott spjall í útvarpsþáttinn
Fotbolti.net - A podcast by Fotbolti.net

Categories:
Það var ekki amalegur gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 en Heimir Guðjónsson kom í heimsókn. Það var víða komið við í spjalli við Heimi sem fór yfir ótrúlega blómlegan tíma hans í Kaplakrikanum og ræddi um næsta verkefni hans sem er að koma HB aftur á toppinn í Færeyjum. Heimir var rekinn frá FH eftir síðasta tímabil þegar liðið endaði í þriðja sæti. Eftir tímabilið talaði Heimir um að þjálffræðilegt afrek hafi verið að ná FH í Evrópusæti.