Landsliðshringborð - Indónesíuferð framundan
Fotbolti.net - A podcast by Fotbolti.net

Categories:
Á föstudaginn var opinberaður landsliðshópur Íslands sem fer til Indónesíu í janúar og leikur tvo leiki gegn heimamönnum, 10. og 14. janúar. Ekki er um opinberan landsleikjadag að ræða svo hópurinn er að stærstum hluta skipaður leikmönnum sem spila í Skandinavíu. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Sigurbjörn Hreiðarsson um hópinn, verkefnið framundan og þá leikmenn sem ekki fengu kallið. Þá var hringt í Böðvar Böðvarsson, leikmann FH, sem er meðal leikmanna úr Pepsi-deildinni sem eru í hópnum.