Koma svo - Hellings fyrrverandi, en ekki í golfi
Hlaðvarp Heimildarinnar - A podcast by Heimildin
Hvað þarf til að ala upp einstakling? Boð og bönn? Reglur? Í Koma svo! er rætt við einstaklinga sem vinna við eða koma á einhvern hátt að málefnum barna og unglinga. Umsjónarmaður Koma svo! er Héðinn Sveinbjörnsson sem hefur langan feril að baki í vinnu með alls konar fólki og faðir tvíbura í framhaldsskóla. Í fjórtánda þætti Koma svo! er rætt við Ragnar Þorsteinsson, fyrrverandi sviðsstjóra Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Hver er staðan í dag? Er menntun fyrir alla?
