#14 - Vextir, lán og fjárfestingar - Kristrún Mjöll Frostadóttir
![](https://is5-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts115/v4/42/ca/cc/42cacc3e-2c2c-9c84-f2c3-50b56095756d/mza_8217302599018077258.jpg/300x300bb-75.jpg)
Categories:
Kristrún Mjöll Frostadóttir er aðalagfræðingur Kviku banka. Kristrún er með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í alþjóðafræðum frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál, og meistaragráðu í hagfræði frá Boston-háskóla. Kristrún starfaði um tíma hjá fjárfestingarbankanum Morgan Stanley. Þar vann hún sem sérfræðingur í greiningardeild, fyrst í New York og síðan í London. Hún hefur einnig starfað hjá Seðlabanka Íslands, í greiningardeild Arion banka og hjá Viðskiptaráði. Í þessu samtali ræddum við um vexti og þá lágvaxtaslóðir sem þeir hafa þrætt undanfarna mánuði í kjölfar lækkunar á stýrivöxtum. Við ræddum einnig um hvað það er að vera fjármagnseigandi í krafti lífeyrissjóða og hvaða áhrif lægri vextir hafa frá mismunandi sjónarhornum, ásamt því að velta upp tækifærum í fjárfestingum hins opinbera.