#11 Gunnar Örn Petersen

Hylurinn Hlaðvarp - A podcast by Hylurinn Hlaðvarp

Í þessari viku mætti Gunnar Örn Petersen í Hylinn. Gunnar er þaul vanur veiði og leiðsögumaður. Byrjaði mjög ungur að veiða en það var við Laxá í Leirársveit þar sem okkar maður kynnist leiðsögn og þá þessum skrautlega og skemmtilega lífstíl sem fylgdi laxveiðinni á þessum tíma. Gunnar er í seinni tíð líklega þekktastur fyrir að fyrir að reka Fish Partner ásamt þeim Sindra og Kristján í nokkur ár. Í dag hefur Gunnar snúið sér að öðrum verkefnum en heldur þó ennþá úti hinni Íslensku Fluguveiðisýningu sem að haldin verður í vor, með aðeins breyttu sniði. Gunnar segir margar skemmtilegar og skrautlegar sögur og naut ég þess í botn að spjalla við þetta ljúfmenni. Hylurinn er í boði Veiðifélagsins, Nóatúni 17. Doddi og Gunni standa sveittir í því að stækka búðina og er hún því lokuð um sinn.  https://veidifelagid.is/  Bílasala Reykjaness er sem fyrr með okkur og erum við þeim mjög þakklátir fyrir stuðninginn. Fylgið þeim endilega á facebook þar sem þeir eru duglegir að henda inn bestu bitunum. https://www.facebook.com/bilasalareykjaness  Jack and Jones og Selected búðirnar í Kringlunni og Smáralind standa með okkur og sjá til þess að við séum sæmilega til fara. Svona fyrir þessar fáu stundir sem maður fer úr vöðlunum. https://bestseller.is/  Hljóðbrot eftir: Sindra Snær Harðarson   Instagram Hylsins - https://www.instagram.com/hylurinn_hladvarp/  Facebook hópur Hylsins - https://www.facebook.com/groups/399717388108132