Gervigreindarbólan og Kvikyndaþing

Samfélagið - A podcast by RÚV

Podcast artwork

Þingkonan Alexandria Ocasio-Cortez hefur varað við því að bandaríska hagkerfið standi frammi fyrir mögulegri gervigreindarbólu. Hún bendir á að gríðarleg fjárfesting í innviðum gervigreindar hvíli á fáum stórfyrirtækjum og að kerfið byggi um of á væntingum um arðsemi, sem enginn viti hvort standist. Við ætlum að ræða þetta við Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins, hér í upphafi þáttar. En við ætlum líka að fjalla um kvikmyndir. Í gær var haldið kvikmyndaþing í Bíó Paradís – þar var staðan tekin á íslenska kvikmyndaiðnaðinum. Yfirskrift þingsins var Verðmætasköpun og menningarspegill – tækifærin í íslenskri kvikmyndagerð. Anton Máni Svansson, formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, og Hrönn Sveinsdóttir, formaður félags kvikmyndaleikstjóra, setjast hjá mér seinna í þættinum til að ræða tækifæri í íslenskri kvikmyndagerð, stöðu kvikmyndaiðnaðarins á Íslandi og annað sem fjallað var um á kvikmyndaþingi. Tónlist úr þættinum: Apple, Fiona - Paper bag. Wilco - I'm the man who loves you.