Sjálfbær jól, ríkisstyrktir ESB-pepparar, jólamálfar
Samfélagið - A podcast by RÚV
Categories:
Hvernig höldum við umhverfisvæn og sjálfbær jól? Hvernig höldum við stresslaus jól? Þetta eru spurningar sem margir spyrja sig þessa dagana. Og við ætlum að reyna að svara þeim í dag, eða svona alla vega byrja að reyna að svara þeim. Þær Birgitta Stefánsdóttir og Þorbjörg Sandra Bakke, sem eru í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun, koma til okkar í upphafi þáttar og gefa okkur góð ráð um sjálfbær og umhverfisvæn jól. Tvö félög hafa fengið fjárstyrk frá utanríkisráðuneytinu upp á tíu milljónir króna til að efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu. Félögin tvö eru Evrópuhreyfingin og Heimssýn. Við vildum vita meira um þessar hreyfingar, sem gera má ráð fyrir að verði áberandi í umræðunni um Evrópumál á næstunni. Í þætti gærdagsins fengum við til okkar talsmann Heimssýnar, og í dag er það Evrópuhreyfingin. Og í lok þáttar fáum við umfjöllun um málfar – nánar tiltekið jólamálfar. Tónlist úr þættinum: Ólöf Arnalds - Bright and still. Marten, Billie - I Can't Get My Head Around You. Labi Siffre - The Vulture
