Stúdíó Síló á Stöðvarfirði, óæskileg fjarskipti og meira um Rosalind Franklin

Samfélagið - A podcast by RÚV

Podcast artwork

Í dag fjöllum við um hvernig ódýr raftæki sem keypt eru á netverslunum geta spillt síma- og netsambandi og jafnvel valdið sambandsleysi. Við rifjum líka eitt helsta dramamál sameindalíffræðinnar, sem tengist meðal annars vísindakonunni Rosalind Franklin. En við byrjum á þessu: Á Stövarfirði á Austufjörðum, í húsakynnum Sköpunarmiðstöðvarinnar, sem áður var fiskvinnsla þorpsins, er rekið eitt áhugaverðasta hljóðver landsins. Stúdíó Síló. Ég þar leið hjá nýverið og fékk að kíkja í heimsókn – og fékk í kjölfarið Vinny Wood, sem rekur stúdíó Síló, í viðtal til að segja mér meira frá hljóðverinu og hvernig það er að halda úti stúdíói í litlu þorpi á Austfjörðum, þar sem ekki einu sinni er matvöruverslun. Við byrjum þar. Tónlist úr þættinum: BSÍ - Þar ert þú