Útrás jólabókaflóðsins, leikskólaheimsókn og púlsinn í desember

Samfélagið - A podcast by RÚV

Podcast artwork

Þessar vikurnar streyma nýútgefnar bækur í bókabúðir og verslanir um allt land í hinu svokallaða  jólabókaflóði . Hugtakið vísar til þess þegar nýjar bækur „flæða“ inn á markaðinn rétt fyrir jólin – þetta hugtak er að sjálfsögðu að löngu orðið rótgróið í íslenskri tungu, en á undanförnum árum hefur hugtakið „jólabókaflóð“ byrjað að skjóta upp kollinum á ólíkum tungumálum í erlendum fjölmiðlum. Branislav Bedi, verkefnastjóri hjá Árnastofnun, sest hjá okkur í upphafi þáttar til að segja okkur meira. Svo kíkjum við í heimsókn á leikskólann Hlíðarenda. Þar finnur starfsfólk fyrir spenningnum og tilhlökkuninni sem eykst hjá börnunum eftir því sem nær dregur jólunum. Sigrún Inga Reynisdóttir deildarstjóri segir mikilvægt að skapa rólegt umhverfi í kringum börnin í desember. Við fáum einnig að heyra í Unni, 5 ára, og Matthíasi Myrkva, 4 ára. Þau segja okkur allt um Grýlu, jólagjafir, jólasveina og syngja fyrir okkur jólalög. Þegar jólaösin er komin á fullt er mikilvægt að gefa sér tíma og staldra við. Það er auðvelt að gleyma sér í streitunni og því skiptir máli að nálgast jólahátíðina með ró, njóta góðra stunda og tengsla við fólkið í kringum sig. Sigrún Þóra Sveinsdóttir, doktor í lífeðlisfræðilegri sálfræði, kíkir til okkar í lok þáttar og gefur okkur góð ráð til að halda púlsinum niðri í jólaösinni. En við byrjum á jólabókaflóðinu. Tónlist úr þættinum: Simon and Garfunkel - The only living boy in New York. Stevens, Sufjan - Come on let's boogey to the elf dance. Boygenius - Powers.