Þráinn Jónsson hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur - Samtaka um land allt

Samtöl atvinnulífsins - A podcast by Samtök atvinnulífsins

Categories:

Samtök atvinnulífsins leggja land undir fót í október og nóvember í Hringferð SA sem ber yfirskriftina Samtaka um land allt. Þar eru vinnu- og fræðslufundir haldnir með aðildarfyrirtækjum, bæjarbúum og stjórnsýslu. Í kjölfarið tekur Guðný Halldórsdóttir hús á vel völdum atvinnurekanda. Í þessum þætti heyrum við í Þránni Jónssyni, framkvæmdastjóra Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur. Guðný og Þráinn fara um víðan völl í spjallinu; allt frá sögu skipasmíðastöðva á Íslandi yfir í nýjustu tækni við þurrkví sem mun fleyta okkur hratt inn í framtíð þessa geira. sa.is